Begovic kominn til QPR (Staðfest)

Begovic lék tvo leiki á láni hjá AC Milan tímabilið 2019-20.

Mynd: Getty Images

Begovic lék tvo leiki á láni hjá AC Milan tímabilið 2019-20.

Mynd: Getty Images
QPR hefur staðfest félagaskipti markvarðarins Asmir Begovic til félagsins en hann kemur á frjálsri sölu eftir að hafa farið frá Everton um síðustu mánaðamót.
Begovic er 36 ára gamall og hefur ekki spilað byrjunarliðsfótbolta í tvö ár en er núna ráðinn inn sem aðalmarkvörður QPR. Hann mun fylla í skarðið fyrir Seny Dieng sem var seldur til Middlesbrough, en Jordan Archer og Joe Walsh eru varamarkverðir QPR.
QPR endaði í neðri hluta Championship deildarinnar á síðustu leiktíð og gerir Begovic eins árs samning við félagið.
Begovic var með önnur samningstilboð á borðinu, meðal annars frá úrvalsdeildinni, en hann valdi QPR til að vera aðalmarkvörður.
Begovic á 63 landsleiki fyrir Bosníu og braust fram í sviðsljósið sem markvörður Stoke City en var keyptur til Chelsea sumarið 2015. Hann lék aðeins 33 leiki á tveimur árum hjá Chelsea áður en hann var seldur til Bournemouth.
???? ???????????????????????????? ???????????????????????????????????? ????
— QPR FC (@QPR) July 17, 2023
Welcome our new number one, @asmir1! ????#QPR | #EFL





