Brentford selur menn til Salzburg og Galatasaray (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images
Brentford er búið að selja danska miðjumanninn Mads Bidstrup til RB Salzburg fyrir um 7 milljónir evra.
Bidstrup er 22 ára gamall og tókst ekki að festa sig í sessi hjá Brentford svo hann var lánaður heim til Danmerkur. Þar stóð hann sig gríðarlega vel með FC Nordsjælland, sem rétt missti af deildartitlinum eftir dramatískar lokaumferðir.
Salzburg er sterkasta liðið í Austurríki og er gríðarlega vinsæll áfangastaður meðal ungra leikmanna. Þeir fá pláss til að sanna sig og vinna sér þannig inn fyrir félagsskiptum til stærra félags í framtíðinni. Bidstrup gerir fimm ára samning við Salzburg
Þá er Brentford búið að selja Halil Dervisoglu til Galatasaray fyrir lítinn pening. Tyrkneska stórveldið er talið borga hálfa milljón evra, en í kaupsamningnum er endursöluákvæði sem gæti gert Brentford kleift að græða á leikmanninum í framtíðinni.
Dervisoglu er 23 ára gamall og með 6 mörk í 15 landsleikjum fyrir Tyrkland. Hann fann aldrei taktinn hjá Brentford og er að ganga til liðs við Galatasaray í þriðja sinn, eftir tvo lánssamninga á síðustu tveimur árum.


Mynd: EPA





