Glugginn opinn - Sveinn Gísli lánaður í Fylki (Staðfest)

Sveinn Gísli Þorkelsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn Gísli Þorkelsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski félagaskiptaglugginn opnaði í dag og verður opinn til 15. ágúst. Fótbolti.net mun að sjálfsögðu fylgjast með öllum helstu skiptunum.
Sveinn Gísli Þorkelsson varnarmaður Víkings er kominn til Fylkis á lánssamningi út tímabilið. Breiðhyltingurinn gekk í raðir Víkings frá ÍR í vetur og hefur komið við sögu í fjórum deildarleikjum og tveimur bikarleikjum í sumar.
Hann verður tvítugur í næsta mánuði, er örvfættur og getur bæði spilað sem miðvörður og vinstri bakvörður. Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Fylkis talaði um að ætla að auka breiddina í varnarlínunni og nú hefur hann gert það.
Sveinn Gísli er kominn með leikheimild og því löglegur fyrir leik Fylkis í kvöld, liðið tekur á móti HK klukkan 20. Árbæingar eru í fallsæti og þurfa á sigri að halda.
„Sveinn Gísli er mjög spennandi leikmaður sem hefur mikinn hraða, styrk og er góð viðbót við frábæran hóp Víkings. Við bindum miklar vonir við hann í framtíðinni," sagði Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, við heimasíðu félagsins þegar Sveinn Gísli kom í janúar.