Ísak skrifar fallega kveðju til æskuvinar síns - „Elska þig vinur"

Hákon Arnar og Ísak Bergmann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hákon er kominn yfir til Lille.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hákon Arnar og Ísak Bergmann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson fékk félagaskipti yfir til Lille í Frakklandi frá FC Kaupmannahöfn í gærkvöldi.
Hákon Arnar er tvítugur Skagamaður sem gekk til liðs við FCK frá ÍA fyrir fjórum árum síðan. ÍA er talið hafa haldið 15 til 20% af endursölurétti á leikmanninum og fær því væna upphæð í bankann fyrir þessi félagaskipti.
Lille er með betri liðum franska boltans og vann deildina tímabilið 2020-21. Hákon gerir fimm ára samning við félagið.
Hákon var lykilmaður í liði Kaupmannahafnar sem vildi ekki selja hann en neyddist til þess eftir nýjasta tilboð Lille sem hljóðaði upp á 17 milljónir evra.
Hákons verður sárt saknað í Kaupmannahöfn en líklega mun enginn sakna hans meira en Ísak Bergmann Jóhannesson, æskuvinur hans. Ísak er á mála hjá FCK.
Ísak skrifaði fallega Instagram færslu eftir að Hákon kvaddi Kaupmannahöfn í gær. „Gangi þér vel elsku vinur. Þetta ævintýri sem við höfum fengið að upplifa saman hefur verið ótrúlegt," skrifar Ísak og heldur áfram:
„Tveir bestu vinir frá Skaganum að spila saman í stærsta félagi Norðurlanda. Vegferðin að spila saman á Norðurálsmótinu í að spila saman í Meistaradeildinni er eitthvað sem við gátum bara dreymt um. Að vinna deildina í fyrra og tvennuna í ár var ógleymanlegt. Allar erfiðu stundirnar sem við höfum fengið að tækla saman og hjálpa hvor öðrum í eru svo dýrmætar. Þú munt pakka þessu saman. Love you bro."
Hákon svarar einfaldlega: „Elska þig vinur."
Það verður gríðarlega spennandi að fylgjast með næsti skrefi á ferli Hákonar, en hann leikur sem sóknartengiliður að upplagi þó hann geti einnig spilað úti á kanti og í fremstu víglínu.