Fotbolti.net
18.07.23 - 09:17
Elvar Geir Magnússon

Jordan Smylie í Hauka (Staðfest)

Jordan Smylie í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Ástralski framherjinn Jordan Smylie er genginn í raðir 2. deildarliðs Hauka. Félagaskiptaglugginn opnaði í dag og hann er kominn með leikheimild.

Smylie yfirgefur Keflavík en hann gekk í raðir félagsins fyrir yfirstandandi tímabil og hefur leikið átta leiki í Bestu deildinni án þess að skora mark.

Þessi 23 ára leikmaður stóð engan veginn undir væntingum hjá Keflavík og fróðlegt að sjá hvernig hann fótar sig með Haukum.
Hann kemur til Hauka frá Keflavík á lánssamningi.

Haukar eru í sjöunda sæti 2. deildar en fyrsti leikur Smylie með félaginu verður væntanlega á morgun þegar Hafnarfjarðarliðið heimsækir Völsung í 16-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.