Fotbolti.net
18.07.23 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Markvörður Rosengard og þrjár aðrar til Liverpool (Staðfest)

Markvörður Rosengard og þrjár aðrar til Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Hertz

Kvennalið Liverpool er að styrkja sig fyrir átök komandi tímabils og er búið að bæta fjórum nýjum leikmönnum sig í sumar, þar á meðal markverði Rosengård í Svíþjóð.

Teagan Micah mun berjast við Rachael Laws um byrjunarliðssætið á milli stanga Liverpool í haust. Micah er 25 ára gömul og á 14 landsleiki að baki fyrir Ástralíu. Hún er í landsliðshópnum sem keppir á HM á heimavelli í ár og er með Írlandi, Kanada og Nígeríu í riðli.

Micah hefur unnið sænsku deildina síðustu tvö ár með Rosengard og á nokkra leiki að baki í Meistaradeild Evrópu með félaginu.

Natasha Flint er þá einnig gengin til liðs við Liverpool eftir að hafa gert frábæra hluti á láni hjá Celtic á seinni hluta síðustu leiktíðar. Flint kemur til Liverpool úr röðum Leicester City en þar áður lék hún meðal annars fyrir Blackburn Rovers og Manchester City.

Hún er 26 ára gömul og var lykilleikmaður upp yngri landslið Englands en tók aldrei stökkuð upp í A-liðið.

Varnarjaxlinn Jenna Clark er þá einnig gengin til liðs við Liverpool eftir að hafa verið mikilvægur hlekkur í liði Glasgow City. Clark er aðeins 21 árs gömul en á sex A-landsleiki að baki fyrir sterkt landslið Skota.

Clark gæti reynst algjör lykilmaður fyrir Liverpool en hún er hæstánægð með félagsskiptin þar sem hún kemur úr mikilli Liverpool fjölskyldu.

Að lokum er hin 18 ára gamla Mia Enderby búin að skrifa undir samning og kemur hún úr röðum Sheffield United. Hún var valin besti ungi leikmaður síðasta tímabils í ensku B-deildinni og spilar fyrir U19 landslið Englands.

Markvörður Rosengard og þrjár aðrar til Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.