Tumi aftur í HK (Staðfest)

Köngulóarmaðurinn snýr aftur í HK.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Köngulóarmaðurinn snýr aftur í HK.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hinn átján ára gamli Tumi Þorvarsson er kominn aftur til HK eftir lánsdvöl hjá Haukum í 2. deildinni.
Tumi spilaði tvo leiki með HK í Bestu deildinni í byrjun tímabils áður en hann var lánaður en hann var kallaður Köngulóarmaðurinn eftir að hafa spilað stórt hlutverk í fyrstu umferð.

Tumi kom inná sem varamaður seint í leiknum gegn Breiðabliki og átti tæklinguna sem bjó til sigurmark HK í uppbótartíma.
Hann skoraði tvö mörk í ellefu leikjum með Haukum í 2. deildinni og lék einnig með liðinu í Fótbolti.net mótinu en er nú aftur kominn með leikheimild með HK.
Þá er markvörðurinn Ólafur Örn Ásgeirsson kominn aftur til HK eftir lánsdvöl hjá Þrótti Vogum. Ólafur er tvítugur og sat á bekknum í Vogunum og kom ekki við sögu í 2. deildinni.