Valur fær framherja sem á marga unglingalandsleiki fyrir Danmörku (Staðfest)

Lise Dissing.

Mynd: DBU

Lise Dissing.

Mynd: DBU

Íslandsmeistarar Vals halda áfram að styrkja sig fyrir átökin í Bestu deild kvenna.
Félagið er nú þegar búið að bæta við sig þremur íslenskum landsliðskonum í þessum glugga. Amanda Andradóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir og Berglind Rós Ágústsdóttir eru allar búnar að semja við félagið.
Núna hefur Valur samið við Lise Dissing, framherja frá Danmörku.
Dissing er fædd í desember árið 2001 og er hún því 21 árs gömul. Hún lék síðast með Thy ThistedQ í dönsku úrvalsdeildinni og þar áður var hún hjá Fortuna Hjørring.
Hún skoraði eitt mark í 22 leikjum með Thisted í dönsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Þá á Dissing leiki að baki með flestum yngri landsliðum Danmerkur, þar á meðal 18 leiki fyrir U19 landsliðið. Hún lék með U23 landsliði Danmerkur í 2-0 sigri gegn Íslandi í apríl á þessu ári.
Valur er sem stendur í öðru sæti Bestu deildar kvenna með jafnmörg stig og topplið Breiðabliks. Liðið er að fara að taka þátt í Meistaradeild Evrópu og fær mikinn liðsstyrk í þeirri baráttu.