Fotbolti.net
18.08.18 - 16:57
Ísak Máni Wíum

Steinar Þorsteins: Þurfum bara að vinna restina

Auglýsing
Steinar Þorsteins: Þurfum bara að vinna restina
Canon

Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir

Þetta var ekki okkar besti leikur en sem betur fer náðum við að vinna í dag.\"

Sagði Steinar Þorsteinsson leikmaður ÍA eftir 2-0 sigur þeirra gegn ÍR á útivelli í dag.
ÍA eru á blússandi siglingu og stefna hraðbyri upp í Pepsi, Steinar er ekkert að flækja þetta þegar hann er spurður hvað þeir þurfi að gera til að komast upp.

Við þurfum bara að vinna restina af leikjunum okkar til að komast upp þetta er ekki flóknara en það.\"

ÍA hafa unnið 5 leiki í röð eftir smá bras og nýju leikmennirnir þeirra Vincent Wejl og Jeppe Hansen hafa verið frábærir á þessum góða kafla ÍA.

Vincent er búinn að vera mjög flottur, hann heldur boltanum vel og gerir mikið fyrir okkur. Jeppe er líka frábær og búinn að skora og leggja upp helling af mörkum fyrir okkur.\"

Næsti leikur ÍA er gegn HK í alvöru toppbaráttuslag næsta föstudag.

Leikurinn gegn HK leggst vel í okkur, þeir eru mjög flott lið og vonandi vinnum við. Þá verður þetta orðið mjög þægilegt fyrir okkur.\"

Sagði Steinar að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.