Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. ágúst 2022 12:30
Elvar Geir Magnússon
Aubameyang ræðir við Chelsea í dag
Blandar Chelsea sér í baráttuna um Casemiro?
Mynd: EPA
Fabrizio Romano segir að fulltrúar Pierre-Emerick Aubameyang muni funda með Chelsea í dag. Rætt verði um kaup og kjör og lengd samnings.

Eftir það muni Chelsea búa sig undir að gera Barcelona tilboð í Aubameyang. Hann og Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, unnu saman hjá Borussia Dortmund á sínum tíma.

Börsungar hafa bætt tveimur framherjum við leikmannahópinn í sumar, Raphinha og Robert Lewandowski. Talið er að félagið sé tilbúið að selja Aubameyang.

Aubameyang er 33 ára og kom til Barcelona frá Arsenal í janúarglugganum.

Annars er það að frétta af Chelsea að 90min segir að Chelsea gæti blandað sér í baráttuna um Casemiro, miðjumann Real Madrid, en Manchester United vinnur að því að fá leikmanninn.


Athugasemdir
banner
banner