Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 18. ágúst 2022 10:30
Elvar Geir Magnússon
Erlendur dómari á Kópavogsslagnum
Erlendur Eiríksson.
Erlendur Eiríksson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
8-liða úrslit Mjólkurbikarsins klárast með leikjum í kvöld og annað kvöld, þá ræðst hvaða lið fylgja KA og FH í undanúrslitin. Dregið verður í undanúrslitin í beinni á RÚV í hálfleik á leik HK og Breiðabliks annað kvöld.

Lögregluvarðstjórinn Pétur Guðmundsson dæmir leik Víkings og KR í kvöld. Aðstoðardómarar verða Gylfi Már Sigurðsson og Egill Guðvarður Guðlaugsson. Einar Ingi Jóhannsson er fjórði dómari.

Málarameistarinn Erlendur Eiríksson dæmir Kópavogsslag HK og Breiðabliks í Kórnum. Andri Vigfússon og Patrik Freyr Guðmundsson verða aðstoðardómarar og Egill Arnar Sigurþórsson fjórði dómari.

Síðast þegar Erlendur dæmdi í Kórnum fékk hann öryggisfylgd úr húsi vegna ógnandi hegðunar þjálfara Gróttu.

fimmtudagur 18. ágúst
20:00 Víkingur R.-KR (Víkingsvöllur)

föstudagur 19. ágúst
20:00 HK-Breiðablik (Kórinn)
Athugasemdir
banner