Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 18. september 2020 08:30
Aksentije Milisic
Aguero tæpur fyrir leikinn gegn Wolves
Mynd: Getty Images
Sergio Augero, framherji Manchester City, hefur verið að æfa einn vegna hnémeiðsla sem hann hefur verið að glíma við.

Aguero spilaði síðast í júní mánuði og hefur hann ekki verið að taka þátt í æfingum hjá City í undirbúningnum fyrir leikinn gegn Wolves á mánudaginn.

Aguero vonaðist eftir því að ná að taka þátt í Meistaradeildinni í síðasta mánuði en það tókst ekki og því batinn verið lengur en menn vonuðust eftir.

Aguero spilaði 32 leiki á síðustu leiktíð og skoraði 23 mörk. Hann hefur aldrei spilað jafn fáa leiki á einu tímabili hjá City síðan hann kom til Atletico Madrid árið 2011.
Athugasemdir
banner
banner