Napoli reynir aftur við Garnacho - Arsenal ekki að ná að semja við Sporting um Gyökeres - Kudus í læknisskoðun hjá Spurs
   fös 18. september 2020 08:00
Aksentije Milisic
Liverpool hefur áhuga á Ismaila Sarr
Liverpool hefur haft samband við Watford og spurt út í stöðu Ismaila Sarr hjá liðinu.

Liverpool hefur ekki boðið í leikmanninn ennþá en mikill áhugi er á Sarr til þess að auka breiddina í sókninni.

Watford vill fá hið minnsta 36 milljónir punda fyrir Sarr en hann kom til liðsins í fyrra.

Watford vill halda Sarr í sínum herbúðum og fá hann til þess að hjálpa liðinu aftur beint upp í ensku úrvalsdeildina en liðið féll á síðustu leiktíð. Sarr gæti þó farið fyrir rétt verð.

Sarr skoraði sex mörk og lagði upp önnur sex í 30 leikjum fyrir Watford á síðustu leiktíð. Þá skoraði hann tvö mörk í 3-0 sigri á Liverpool í febrúar mánuði.
Athugasemdir
banner