Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 18. september 2021 07:00
Victor Pálsson
Lewandowski stefnir á fjögur ár
Mynd: Getty Images
Robert Lewandowski stefnir á að spila í allavega fjögur ár í viðbót en hann er í dag 33 ára gamall.

Lewandowski skoraði tvenn fyrir Bayern Munchen í vikunni er liðið vann 3-0 útisigur á Barcelona í Meistaradeildinni.

Miðað við orð Lewandowski er hann hvergi nærri hættur og ætlar að spila á toppnum í nokkur ár til viðbótar.

„Ég er í góðu líkamlegu standi og er með rétt hugarfar. Ég get spilað í mörg ár til viðbótar, ég er viss um að þau verði allavega fjögur," sagði Lewandowski.

„Eftir það þá sjáum við til og kannski get ég gert enn betur. Tölfræðin mín hefur aldrei verið betri."

„33 er bara tala og það sýnir ekki hversu gamall ég er í raun og veru."
Athugasemdir
banner
banner