Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 18. september 2022 22:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Höskuldur kallaður inn í landsliðshópinn fyrir Alfons
Mynd: KSÍ

Alfons Sampsted þurfti að draga sig úr landsliðshópnum fyrir leikina gegn Venesúela og Albaníu vegna meiðsla. Hann þurfti að fara af velli á 64. mínútu í leik Bodö/Glimt gegn Haugesund í dag.


Höskuldur Gunnlaugsson leikmaður Breiðabliks er valinn í hans stað. Hann mun koma við móts við liðið á morgun.

Höskuldur er fyrirliði Blika en hann á fimm A-landsleiki fyrir Íslandshönd.

Ísland mætir Venesúela í vináttuleik 22. september og Albaníu í síðasta leik sínum í Þjóðadeild UEFA 27. september í Tirana í Albaníu.


Athugasemdir
banner
banner