Fotbolti.net
18.10.16 - 12:23
Jóhann Ingi Hafþórsson

Elísa Viðars um Kína: Ótrúlega flott en við þurfum að pissa í holu

Auglýsing
Elísa Viðarsdóttir

Elísa Viðarsdóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
<i>„Þetta er ótrúlega flott, svona fljótt á litið en við þurfum að pissa í holu,\"</I> sagði Elísa Viðarsdóttir, bakvörður Vals og landsliðsins, um aðstæðurnar í Kína.

Landsliðið er sem stendur í Kína þar sem það keppir á alþjóðlegu móti í undirbúningi fyrir EM, næsta sumar en fyrsti leikur íslenska liðsins er einmitt gegn Kínverjum.
„Það er gaman að spila á móti Kína, þær eru kvikkar og maður þarf að vera á tánum og við megum ekkert slaka á. Þetta ætti að vera gaman.\"

„Þær eru á heimavelli og vilja vinna en við förum í alla leiki til að vinna þá, við sjáum hvernig þetta fer að lokum,\" sagði Elísa.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.