Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 18. október 2019 19:57
Elvar Geir Magnússon
Gunnar Guðmunds tekur við Þrótti (Staðfest)
Gunnar Guðmundsson.
Gunnar Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur Reykjavík hefur ráðið nýjan þjálfara fyrir baráttuna í Inkasso-deildinni. Gunnar Guðmundsson er tekinn við liðinu.

Gunnar var síðasta sumar aðstoðarþjálfari Grindavíkur. Hann verður ekki áfram þar. Sigurbjörn Hreiðarsson tók við Grindavík og verður Ólafur Brynjólfsson honum til aðstoðar.

Gunnar þjálfaði áður meistaraflokka HK, Selfoss og Gróttu og hefur einnig þjálfað landslið U-17 karla. Hann þjálfaði síðast Gróttu sumarið 2015.

Þróttur var í vandræðum í Inkasso-deildinni á liðnu sumri og bjargaði sér frá falli í lokaumferðinni.

Þórhallur Siggeirsson, sem þjálfaði Þrótt, var rekinn eftir tímabilið.

Tilkynning frá Þrótti:
Gunnar Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokksliðs karla hjá Þrótti og gildir samningurinn út keppnistímabilið 2022.

Gunnar hefur áður þjálfað lið HK sem hann fór með í efstu deild, Landsbankadeildina, árið 2006 og einnig lið Selfoss og Gróttu í 1.deildinni en hann á að baki yfir 170 leiki í tveimur efstu deildum Íslandsmótsins sem aðalþjálfari. Hann var á síðasta keppnistímabili aðstoðarþjálfari liðs Grindavíkur í Pepsi Max deildinni.

Gunnar hefur jafnframt verið landsliðsþjálfari U16 ára og U17 ára liðanna og stýrði hann m.a. U17 ára liðinu í úrslitakeppni EM árið 2012 en í því liði var einmitt einn núverandi leikmaður Þróttar, Daði Bergsson. Aðilar eru sammála þeirri stefnu knattspyrnudeildar Þróttar að byggja lið til framtíðar á ungum uppöldum leikmönnum félagsins í bland við leikmenn sem miðla munu reynslu í þeim verkefnum sem framundan eru.

Þróttur bíður Gunnar velkominn í Laugardalinn og lítum við björtum augum til farsæls samstarfs á komandi tímabilum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner