Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 18. nóvember 2020 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Giroud: Ég er vanur þessu áreiti
Olivier Giroud skoraði tvö fyrir Frakkland í gær
Olivier Giroud skoraði tvö fyrir Frakkland í gær
Mynd: Getty Images
Olivier Giroud skoraði tvö mörk fyrir Frakkland sem vann 3-2 sigur á Svíþjóð í lokaleik liðanna í A-deild Þjóðadeildarinnar í gær. Giroud er nú aðeins sjö mörkum frá því að jafna markamet Thierry Henry.

Giroud var gagnrýndur af frönskum fjölmiðlum eftir slaka frammistöðu í 2-0 tapinu gegn Finnlandi á dögunum en hann svaraði fyrir það í gær með því að koma boltanum tvisvar í netið.

Hann er 34 ára gamall, fær lítið að spila hjá Chelsea, en er samt sem áður afar mikilvægur fyrir franska liðið.

Hann er næst markahæsti leikmaður franska landsliðsins frá upphafi og er nú aðeins sjö mörkum frá því að jafna markametið sem er í eigu Thierry Henry.

„Ég var ekki að reyna að hefna mín. Ég er vanur þessu áreiti og það er svolítið saga ferilsins. Þetta gefur mér meiri styrk og það er ekkert að því," sagði Giroud.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner