Fotbolti.net
18.11.21 - 22:36
Brynjar Ingi Erluson

Siggi Bond í Aftureldingu (Staðfest)

Sigurður Gísli Bond Snorrason er mættur í Mosfellsbæ

Sigurður Gísli Bond Snorrason er mættur í Mosfellsbæ

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla

Sigurður Gísli Bond Snorrason skrifaði í kvöld undir tveggja ára samning við Aftureldingu en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Sigurður Gísli, sem er 26 ára gamall. hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Þrótt Vogum eftir tímabilið en hann hjálpaði liðinu að komast upp í Lengjudeildina í sumar.

Hann er uppalinn hjá FH en hefur síðustu tvö tímabil spilað með Þrótturum. Sigurður hefur einnig spilað með Fram, ÍR og Kórdrengjum og á 116 leiki og 17 mörk í deild- og bikar.

Sigurður gerði í kvöld tveggja ára samning við Aftureldingu og mun styrkja liðið í baráttu þeirra í Lengjudeildinni.

„Tilfinningin er hrikalega góð og ég er hrikalega ánægður með að vera kominn hingað," sagði Sigurður við undirskrift.

Afturelding hafnaði í 10. sæti Lengjudeildarinnar á síðustu leiktíð með 23 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.