Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 18. nóvember 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Mane búinn í aðgerð - Heppnaðist vel
Mynd: Getty Images

FC Bayern er búið að staðfesta að senegalski framherjinn Sadio Mane er búinn að gangast undir velheppnaða aðgerð á hægra hné.


Mane sleit sin í hné og mun hefja endurhæfingu í München. Hann missir alveg af heimsmeistaramótinu og þarf að fylgjast með liðsfélögum sínum að heiman.

Mane er þrítugur framherji og var óheppinn að meiðast í stórsigri Bayern gegn Werder Bremen í þýsku deildinni 8. nóvember. Meiðslin virtust ekki sérlega slæm í fyrstu og bjóst Mane við að ná síðasta leik riðlakeppninnar en svo kom í ljós að hann hafði slitið sin og þurfti að fara í aðgerð.

Mane verður frá út HM en gæti verið klár í slaginn með Bayern strax í janúar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner