Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 19. janúar 2022 19:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sancho fór í jarðarför - Bað um að sleppa leiknum
Mynd: Getty Images
Edinson Cavani og Jadon Sancho eru ekki í leikmannahópi Man Utd sem mætir Brentford í kvöld.

Edinson Cavani varð fyrir einhverjum vöðvameiðslum á æfingu liðsins og það er óvíst hversu alvarleg þau meiðsli eru.

Ralf Rangnick stjóri Man Utd staðfesti síðan í kvöld að Jadon Sancho hafi beðið um að sleppa leiknum þar seem fjölskyldumeðlimur hafi fallið frá.

Leikurinn hefst kl 20:00 en Man Utd hefur aðeins nælt í eitt stig í síðustu tveimur leikjum í deildinni.

„Það var jarðaför í dag, hann bað um að sleppa leiknum, það hefði ekki meikað sense fyrir hann að taka þátt," sagði Rangnick.
Athugasemdir
banner
banner
banner