Fotbolti.net
19.01.23 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Karius verður hjá Newcastle til sumars (Staðfest)

Karius verður hjá Newcastle til sumars (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle hefur staðfest að markvörðurinn Loris Karius verði áfram í herbúðum félagsins út tímabilið.

Þýski markvörðurinn skrifaði upphaflega undir skammtímasamning með ákvæði um mögulega framlengingu til júní 2023.

Loris er 29 ára og hefur áður spilað fyrir Mainz, Liverpool, Besiktas og Union Berlin.

Hann hefur enn ekki leikið neinn opinberan leik fyrir Newcastle, aðeins æfingaleik.
„Hann hefur æft vel og er mjög góður karakter. Hann er vinsæll í klefanum og hefur haft jákvæð áhrif. Þess vegna vildi ég halda honum lengur," segir Eddie Howe.

Nick Pope er aðalmarkvörður Newcastle en liðið hefur verið að gera flotta hluti á tímabilinu og situr í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.