Brasilíski sóknarmaðurinn Neymar segist ekki hafa misst af leikjum PSG að undanförnu vegna meiðsla.
Neymar skoraði í 2-1 tapi gegn Borussia Dortmund í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær en hann hafði misst af síðustu þremur deildarleikjum PSG þar á undan.
Neymar skoraði í 2-1 tapi gegn Borussia Dortmund í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær en hann hafði misst af síðustu þremur deildarleikjum PSG þar á undan.
Hinn 28 ára gamli Neymar segist ekki hafa verið meiddur heldur hafi PSG einfaldlega ekki þorað að leyfa honum að spila eftir meiðslasögu á þessu tímabili.
„Það var ekki mitt val að spila ekki síðustu leiki. Ég vildi spila og mér leið vel. Þetta var hræðsla hjá félaginu og það bitnaði á mér," sagði Neymar.
Neymar hefur skorað sextán mörk og lagt upp tíu í nítján leikjum á þessu tímabili.
Athugasemdir