Fotbolti.net
19.05.15 - 22:07
Arnar Ingi Ingason

Adda: Gríðarlega erfitt að koma í Árbæinn

Auglýsing
Adda sterk aftur inn í byrjunarlið Stjörnunnar.

Adda sterk aftur inn í byrjunarlið Stjörnunnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Hertz
„Við erum gríðarlega sáttar með sigur sem og að halda hreinu á gríðarlega erfiðum útivelli hérna í Árbænum.“ Sagði Ásgerður Stefanía Baldursdóttir fyrirliði Stjörnunnar í Pepsi-deild kvenna eftir frábæran sigur á Fylki.
„Það er oft talað um að þriðja markið vinni leikinn en þær [Fylkisstúlkur] settu á okkur í seinni hálfleik og voru með mjög mikinn kraft þannig að mér fannst fjórða markið gera meira út um leikinn frekar en annað og þriðja“ sagði Ásgerður aðspurð hvort Stjörnustelpurnar hafi sett í bakkgírinn eftir fyrri hálfleikinn, í samtali við Fótbolta.Net“

„Við þurftum að koma ákveðnar á þær. Það er hrikalega erfitt að koma hérna í Árbæinn að spila, þetta er svolítil gryfja hérna í Lautinni. Við ætluðum að setja á þær frá byrjun og mér fannst okkur takast það frá byrjun til enda.“

„Við hugsuðum bara um að taka þrjú stig og að halda hreinu, það er það eina sem skiptir máli.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.