banner
   lau 19. maí 2018 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimili Kjartans Henry vaktað af lögreglunni
Kjartan Henry skoraði tvö í gær.
Kjartan Henry skoraði tvö í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Henry Finnbogason átti magnaða innkomu í gær þegar Horsens náði 2-2 jafntefli við Bröndby í dönsku úrvalsdeildinni.

Kjartan byrjaði á bekknum en kom svo sannarlega ferskur inn í leikinn. Horsens var 2-0 undir þegar Kjartan kom inn á þegar 85 mínútur voru búnar, en Kjartan skoraði tvisvar á síðustu mínútunum og jafnaði leikinn fyrir Horsens.

Kjartan er ekki vinsælasti leikmaðurinn hjá stuðningsmönnum Bröndby í augnablikinu þar sem möguleikar liðsins á danska meistaratitilinum minnkuðu mjög með þessum úrslitum.

Stuðningsmenn Bröndby eru þekktir fyrir að láta vel í sér heyra en þeir voru ekki nægilega sáttir með úrslitin í gærkvöld og hlupu inn á völlinn að honum loknum. Upp úr því urðu slagsmál og voru einhverjir sem lágu slasaðir eftir.

Kjartan lýsti yfir áhyggjum sínum eftir leikinn, en samkvæmt öruggum heimildum Fótbolta.net var heimili Kjartans vaktað af lögreglunni eftir úrslit leiksins, vegna hættunnar sem stafaði af áhangendum Bröndby.

Aðeins ein umferð er eftir af dönsku úrvalsdeildinni og er Bröndby nú tveimur stigum á eftir Midtjylland fyrir lokaumferðina. Bröndby hefði verið á toppnum fyrir lokaumferðina með sigri í kvöld. En Kjartan Henry sá til þess að svo er ekki.
Athugasemdir
banner
banner
banner