Niko Hansen: Tala bara íslensku á föstudögum
Auglýsing

Það er samt bara fínt að fara norður

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mér finnst fínt að tala íslensku, skil allt á íslensku en ég þarf stundum að leita að orðum og þá byrja ég að tala ensku

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er samt bara fínt að fara norður

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

„Mér líst fínt á þetta, hefði alveg verið til í að fá heimaleik en það er samt bara fínt að fara norður og spila við Þór," sagði Nikolaj Hansen, fyrirliði Víkings, við Fótbolta.net í dag.
Dregið var í dag í 8-liða úrslitin í Mjólkurbikarinn og bikarmeistararnir mæta Þór á Akureyri. Víkingur vann Magna í 32-liða úrslitunum og Gróttu í 16-liða úrslitunum. Fréttaritari spurði Nikolaj á léttu nótunum hvort þeir væru að velja andstæðinga sína sjálfir þar sem hingað til kæmu þeir allir úr deild fyrir neðan og deildum í tilfelli Magna.

„Þetta eru allt búnir að vera mjög erfiðir leikir. Grótta spilaði mjög vel í gær og það tók tíma að finna taktinn."
„Það er smá erfitt, þetta snýst um hausinn, að vera tilbúinn að koma inn á ef eitthvað gerist. Það er fínt að hvíla menn og gott að strákarnir fengu 90 mínútur," sagði Nikolaj sem sat á varamannabekknum í gær og fékk hvíld.
Víkingur hefur með bikarkeppninni unnið fyrstu níu leiki sína á tímabilinu.
„Fólk sem horfir á þetta utan frá, sér okkur í Lengjubikarnum, veit kannski ekki að við erum að æfa sex sinnum í vikunni fyrir leikina, vorum að æfa mikið og menn voru þreyttir. Við höfum byrjað vel og það er bara áfram gakk."
Hann hefur skorað þrjú mörk í fyrstu sjö leikjunum og er ánægður með eigin byrjun á mótinu.
„Ég er búinn að byrja mjög vel, væri samt til í að skora fleiri mörk. Við erum búnir að vinna alla leikina þannig ég get ekki kvartað."
Nikolaj fékk að ráða hvort viðtalið yrði á íslensku eða ensku. Hann sagðist hafa heyrt í Innkastinu að hann ætti að tala íslensku í viðtölum og því var viðtalið á íslensku.
„Mér finnst fínt að tala íslensku, skil allt á íslensku en ég þarf stundum að leita að orðum og þá byrja ég að tala ensku. Á föstudögum má ég bara tala íslensku."
„Í klefanum tala ég mest ensku, en finnst gaman að tala íslensku. Við Oliver Ekroth tala ég ensku, hann skilur dönsku og ég skil smá sænsku en það er bara auðveldara að tala ensku," sagði Nikolaj sem talar þó dönsku við Færeyinginn Gunnar Vatnhamar.