Maguire gæti elt McTominay til Napoli - Kolo Muani horfir til Englands - Nkunku vill fara frá Chelsea
Frétti á Instagram að hann yrði ekki áfram í Kanada - „Eins og er, þá er það ekki planið"
Sjáðu mörkin úr leik Fram og KR
Valdimar Þór: Smá einbeitingarleysi sem er stórhættulegt í þessari keppni
Glímir við sama vandamál og Guardiola - „Hvenær endar lærdómurinn?"
Ari Sigurpáls: Heiður að þeir hafi áhuga
Sjáðu mörkin úr Bose mótinu um helgina - Eiður byrjaði vel hjá KR
Axel Óskar kominn heim: Núna spilar maður með hjartanu
Jökull: Upplifði einhverja ást hér sem ég hef ekki upplifað áður
Þórður Gunnar: Leist best á Aftureldingu
Oliver með fiðring: Báðir bræður mínir spiluðu hér
„Einu leikmennirnir sem við höfum farið í viðræður við“
Segir Breiðablik vera alltof spennandi - „Virkilega margir sem skildu mig"
Arnar Pálmi: Aldrei upplifað annað eins
Sá leikjahæsti framlengdi við Völsung - „Ákvað að hætta því leikriti núna"
Alli Jói: Eins stórt og það gerist fyrir Völsung
Elfar Árni: Ekki hægt að segja nei þegar hann sagði mér að drulla mér heim
Var með nokkur tilboð en fannst FH langmest spennandi
Hoppaði í sófanum þegar lausn fannst - „Atvinnumennska að koma í Breiðablik"
Aftur upp í Bestu deildina - „Í sjálfu sér seldur eftir þann fund"
Valgeir vonar að fólk skilji sig - „Hef heyrt sögur úr Kórnum"
   mið 19. júní 2019 21:42
Arnar Daði Arnarsson
Hannes: Þessi umræða hefur vegið að æru minni
Hannes í leik með Val í sumar. Hann er í ítarlegu viðtali í sjónvarpinu að ofan.
Hannes í leik með Val í sumar. Hann er í ítarlegu viðtali í sjónvarpinu að ofan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hannes með landsliðinu fyrr í mánuðinum.
Hannes með landsliðinu fyrr í mánuðinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Hulda Margrét
Hannes Þór Halldórssyni markverði Vals var mikið niðri fyrir þegar hann ræddi við fjölmiðla eftir 3-2 tap liðsins gegn KR í Pepsi Max-deildinni í kvöld.

Hannes hefur verið gagnrýndur fyrir að fara í brúðkaup Gylfa Þórs Sigurðssonar um helgina á sama tíma og hann missti af leik Vals og ÍBV vegna meiðsla.

Hjörvar Hafliðason fullyrti að hann væri með klásúlu í samningi sínum um að mega fara í brúðkaupið en Hannes svaraði öllu í viðtalinu sem er í sjónvarpinu.

Lestu um leikinn: KR 3 -  2 Valur

„Það stendur ekki einn stafur í mínum samningi um brúðkaup Gylfa Sig. Ég get lofað þér því," sagði hann.

„Ég verð að fá að segja nokkur orð um þetta mál. Í fyrsta lagi meiddist ég í þessum landsleik og það er staðreynd. Ég gæti farið út í smáatriði en það tekur of mikinn tíma. Ég gæti gefið ykkur símanúmer hjá öllum þremur sjúkraþjálfurum landsliðsins eða Einari Óla sjúkraþjálfara Vals ef þið viljið nánari staðfestingu á því."

„Ég taldi mig hafa hingað til á mínum ferli sýnt að það þurfi ekki að efast um fagmennsku mína og trygglyndi gagvart þeim félögum sem ég spila fyrir."

„Ég hef aldrei skorast undan skyldu minni sem fótboltamaður og þvert á móti hef ég lagt á mig aukalega til að vera í eins góðu standi og ég get fyrir þau lið sem ég hef spilað fyrir. Þannig hef ég litið á fótbolta og það mun ekki breytast."

„Þess vegna finnst mér helvíti ódýrt að það sé reynt að gera stutta ferð mína til Ítalíu tortryggilega með öllum mögulegum aðferðum í æsifréttastíl þegar ég hefði ekki einu sinni geta tekið þátt í leiknum vegna meiðsla. Það er alltaf leiðinlegt að missa af leikjum vegna meiðsla við Valsmenn erum vel settir í markmannsmálum og Toni kom inn, spilaði vel og við unnum leikinn 5-1."


„Ég bara get ekki orða bundist þegar ég þarf að sitja undir því að ég sé að snúa baki við liðsfélögunum, að ég sé að setja Óla Jó í erfiða stöðu, að ég sé að gera lítið úr deildinni, að ég sé að gera lítið úr félaginu mínu og að þurfa að hlusta á hlægilegar pælingar hvort Óli sé að testa hug minn og staðfestu til félagsins," sagði Hannes.

„Staðreyndin er sú að Óli hvatti mig eindregið til að fara, bað kærlega að heilsa Gylfa og óskaði mér góðrar skemmtunar."

„Ég er ekki sáttur við umræðuna. Ég þarf að eins að hugsa núna því ég ætla að velja orð mín rétt. Ég veit það fyrir víst að leikmenn liðsins, þjálfarateymi, bakhjarlar og stjórnarmenn standa við bakið á mér og styðja við þessa ákvörðun Óla að gefa mér tveggja daga andrými til að fara út og fagna þessari stórkostlegu stund með vini mínum sem hefur haft ótrúleg áhrif á minn feril og mitt líf."

„Ég myndi aldrei gera mér upp meiðsli til að sleppa því að spila fótboltaleik. Ég hef alltaf sinnt mínu starfi sem fótboltamaður af 100% fagmennsku og það mun ekki breytast. Mér finnst þessi umræða hafa vegið að æru minni sem íþróttamanni og hún er óásættanleg."


Finnst þér umræðan vera ástæðulaus, og finnst þér skrítið að menn séu að hugsa út í þetta?

„Það er ágætt að þú spyrð mig að því. Ég skil alveg útaf eðli meiðslanna og tímasetningu að þetta sé milli tannanna á fólki. Þetta brúðkaup var stór og mikill viðburður og mikið í umræðunni. Ég er landsliðsmarkvörður og staða Vals vekur umtal. Ég veit hinsvegar hverjar staðreyndirnar eru í þessu og þess vegna svíður þegar umræðan er keyrð áfram á innihaldslausum fullyrðingum sem hafa enga stoð í raunveruleikanum."
Athugasemdir
banner
banner
banner