Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stelpurnar okkar verða í sérsaumuðum drögtum á EM
Icelandair
EM KVK 2025
Karólína Lea í dragtinni.
Karólína Lea í dragtinni.
Mynd: KSÍ - Anna Maggý
Íslenska kvennalandsliðið er á leið á EM í næsta mánuði en utan vallar á mótinu verða stelpurnar í sérsaumuðum drögtum frá Andrá Reykjavík.

Dragtin er hönnuð af Steinunni Hrólfsdóttur. Valdir voru klassískir dökkbláir litir fyrir dragtina, brotið upp með afslöppuðum hvítum stuttermabol. Hver jakki er persónulegur – innan í honum er nafn og númer leikmannsins handsaumað með rauðum þræði. Litirnir eru svo lágstemmd tilvísun í íslensku fánalitina.

„Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt verkefni að vinna að. Við í Andrá elskum að klæða sterkar, flottar konur – það er okkar ástríða. Að fá tækifæri til að klæða landsliðið okkar er því bæði sannur heiður og algjör draumur," segir Steinunn.

„Ég hef líka fylgst með mörgum af þessum stelpum frá því þær voru litlar og það er magnað að sjá þær komnar svona langt. Það er svo ótrúlegt að fylgjast með þessum leikmönnum, hvað þær leggja mikið á sig og gefa allt í þetta. Það er mikill innblástur. Svo er líka bara svo gaman að fylgjast með því hvað kvennafótbolti almennt er á miklu flugi og við í Andrá erum mjög stoltar að fá að vera þó ekki nema bara pínulítill hluti af því."

„Við elskum líka hugmyndina um að blanda saman þessum tveimur heimum - íþróttanna og svo tísku."

Innan vallar verður Ísland svo í búningnum frá Puma eins og áður. Nýverið var gefinn út sérstakur búningur fyrir mótið.


Athugasemdir
banner