De Bruyne og Grealish til Napoli? - Rodrygo og Frimpong til Liverpool - Al Hilal vill tvo frá Liverpool - Tveir orðaðir frá Newcastle
   fös 09. maí 2025 17:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Svona er nýr landsliðsbúningur Íslands fyrir EM
Icelandair
Sandra María Jessen og Natasha Anasi í búningnum.
Sandra María Jessen og Natasha Anasi í búningnum.
Mynd: KSÍ
Stelpurnar okkar eru á leið á Evrópumótið í Sviss í sumar og af því tilefni hefur verið gefin út ný landsliðstreyja sem stelpurnar okkar spila í á mótinu.

PUMA framleiðir sérstakar treyjur sem liðið mun spila í, í stað hefðbundinna varabúninga á EM í sumar.

„Treyjan er sérhönnuð fyrir íslenska landsliðið, hönnuðir PUMA sækja innblástur í hreyfingar Norðurljósanna og flæði jökuláa landsins. Það er vonandi að sú orka skili okkur langt á mótinu," segir í tilkynningu KSÍ.

Treyjurnar eru að nær öllu leyti úr endurunnu hráefni.

EM treyjurnar eru væntanlegar í sölu á fyririsland.is og í allar helstu verslanir í lok maí mánaðar. Mjög takmarkað magn verður í sölu hér innanlands.

Leikir Íslands á EM:
2. júlí, Ísland - Finnland (Arena Thun)
6. júlí, Sviss - Ísland (Stadion Wankdorf)
10. júlí, Noregur - Ísland (Arena Thun)
Athugasemdir
banner