Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. júlí 2019 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Söguleg ráðning í enskum fótbolta
Hanna Dingley.
Hanna Dingley.
Mynd: Forest Green
Hannah Dingley hefur verið ráðin sem yfirmaður unglingaakademíu hjá Forest Green, sem leikur í D-deild Englands.

Hin 35 ára gamla Dingley verður fyrsta konan til að gegna álíka hlutverki í enskum karlafótbolta.

Ásamt því að vera yfirmaður akademíunnar mun hún fara fyrir stofnun á nýrri kvennaakademíu hjá Forest Green.

Hún var áður að þjálfa í akademíunni hjá Burton Albion og var hún langhæfust í starfið hjá Forest Green að sögn stjórnarformannsins Dale Vince.

„Við vorum með 60 umsækjendur og hún var langhæfust," sagði Vince við Sky Sports News.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner