Victor Valdés, fyrrum markvörður Barcelona og spænska landsliðsins, var í daginn ráðinn þjálfari U19 ára liðs félagsins.
Valdés lagði hanskana á hilluna á síðasta ári eftir magnaðan feril en hann lék með aðalliði Barcelona frá 2002 til 2014. Hann vann 21 titil með liðinu en hefur nú ákveðið að snúa sér að þjálfun.
Hann er búinn að ljúka við bæði UEFA B- og UEFA A-gráðu og hefur nú verið ráðinn þjálfari U19 ára liðs Barcelona.
Valdés gerði eins árs samning við Barcelona með möguleika á að framlengja.
A legend returns to FC Barcelona
— FC Barcelona (@FCBarcelona) July 19, 2019
💪 Welcome home, Víctor!
🔵🔴 #ForçaBarça https://t.co/BuqslCAziU
Athugasemdir