Fotbolti.net
19.07.23 - 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Havertz skoraði úr núll af 14 tilraunum - Fyrstur í sögunni

Kai Havertz.

Kai Havertz.

Canon

Mynd: Getty Images

Mikið grín hefur verið gert af þýska landsliðsmanninum Kai Havertz eftir að honum gekk afar illa að ná tökum á þrautum fyrir stjörnuleikinn í MLS-deildinni í Norður-Ameríku.
Arsenal er í æfingaferð í Bandaríkjunum og spilar við stjörnulið MLS-deildarinnar í kvöld. Síðastliðna nótt kepptu leikmenn Arsenal við stjörnur MLS-deildarinnar í hinum ýmsu þrautum.

Havertz var á meðal leikmanna Arsenal sem tóku þátt en honum gekk bölvanlega.

Í einni þrautinni fær Havertz sendingu frá liðsfélaga, hann á svo að taka á móti boltanum á lofti og reyna að skora. Hann skoraði úr engri af 14 tilraunum sínum og er fyrsti fótboltamaðurinn í sögunni sem gerir það.

Í annarri þraut gekk honum afar illa að ná stjórn á boltanum.

Havertz var keyptur til Arsenal frá Chelsea á 65 milljónir punda í sumar. Félagið bindur miklar vonir við hann.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.