Kristall Máni hluti af kaupverði Rosenborg fyrir Frederiksen

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rosenborg er að kaupa Emil Frederiksen af Sönderjyske á um 100 þúsund evrur eða rúmlega 15 milljónir íslenskra króna. Frederiksen er 22 ára sóknarmaður sem getur bæði spilað á kantinum sem og sem fremsti maður.
Hann var markahæsti leikmaður Sönderjyske á liðnu tímabili, skoraði sextán mörk í 29 deildarleikjum og lagði upp níu mörk.

Sönderjyske mistókst ætlunarverk sitt að komast upp í Superliga og verður því áfram í dönsku B-deildinni.
Í dönskum og norskum miðlum var fjallað um það í gær að Kristall Máni Ingason væri á leið frá Rosenborg til Sönderjyske sem hluti af kaupverðinu.
Frederiksen er mættur til Þrándheims og gengst undir læknisskoðun hjá Rosenborg í dag. Kristall er sagður skrifa undir þriggja ára samning við danska félagið.
Hann hefur ekki staðið undir væntingum hjá Rosenborg og er hann óvinsæll meðal stuðningsmanna liðsins.