Fotbolti.net
19.07.23 - 20:36
Ívan Guðjón Baldursson

Ósáttur Mitrovic ætlar aldrei að spila fyrir Fulham aftur

Ósáttur Mitrovic ætlar aldrei að spila fyrir Fulham aftur
Canon

Mynd: Getty Images

Serbneski framherjinn Aleksandar Mitrovic er gríðarlega ósáttur með stjórnendur Fulham sem neita að selja hann til Sádí-Arabíu fyrir minna en 52 milljónir punda.

Mitrovic hefur sagt vinum sínum og vandamönnum að hann muni aldrei aftur spila fyrir félagið, enda sé hann æfur yfir þessari ákvörðun eftir að Fulham hafnaði tilboðum frá Al-Hilal.

Al-Hilal bauð fyrst 25 milljónir, sem var hafnað, og svo 30 milljónir. Fulham hefur svarað með að biðja um 52 milljónir, sem er alltof mikið fyrir sádí-arabíska félagið.

Mitrovic ætlaði ekki með Fulham í æfingaferð til Bandaríkjanna, sem fer af stað á morgun, og þurfti umboðsmaðurinn Pini Zahavi að sannfæra hann um að sameinast hópnum og fljúga út með liðsfélögunum. Zahavi þurfti hjálp frá fulltrúm ensku leikmannasamtakanna til að sannfæra Mitrovic.

Mitrovic er gríðarlega ósáttur með að Fulham sé að koma í veg fyrir þetta tækifæri á hans ferli, þar sem samningstilboðið frá Al-Hilal er svakalega gott. Hann er að íhuga að gefa ekki kost á sér í keppnisleiki Fulham í ágúst í mótmælaskyni.

Sky Sports greinir frá þessu og bætir því við að forsvarsmenn Fulham hafi kosið að svara ekki spurningum varðandi málið.

Mitrovic hefur verið algjör lykilmaður í liði Fulham undanfarin ár þar sem hann á 111 mörk í 205 leikjum fyrir félagið.

Ósáttur Mitrovic ætlar aldrei að spila fyrir Fulham aftur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.