Bayern Munchen hefur fengið brasilíska miðjumanninn Philippe Coutinho á láni frá Barcelona.
Lánssamningurinn gildir út tímabilið en talið er að Bayern borgi 8,5 milljónir evra fyrir samninginn. Bayern á síðan möguleika á að kaupa Coutinho á 120 milljónir evra næsta sumar eða 109 milljónir punda.

Barcelona keypti Coutinho frá Liverpool í janúar 2018 á 142 milljonir punda.
Coutinho hefur hins vegar ekki náð sér á strik með Börsungum og fyrir þetta tímabil var ljóst að hann ætti ekki fast sæti í liðinu.
Hinn 27 ára gamli Coutinho gæti spilað sinn fyrsta leik með Bayern gegn Schalke á laugardaginn.
♦ Servus, @Phil_Coutinho! ♦ #ServusCoutinho
— FC Bayern München (@FCBayern) August 19, 2019
ℹ https://t.co/Y5HhOIogrQ #FCBayern pic.twitter.com/pMV5z0QMv2
Athugasemdir