Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 19. ágúst 2019 12:37
Fótbolti.net
Magnaður misskilningur - Rangur Alexander mætti á æfingu hjá HK
Alexander Freyr Sindrason í leik HK og Grindavíkur í gær.
Alexander Freyr Sindrason í leik HK og Grindavíkur í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alexander Freyr Sindrason hefur komið sterkur inn í vörn HK-inga í síðustu tveimur leikjum en hann kom til félagsins frá Haukum í júlí. Í Dr. Football í dag kom fram áhugaverð saga í tengslum við félagaskipti hans.

„Brynjar Björn (Gunnarsson, þjálfari HK) hringir í Búa (Vilhjálm Guðmundsson) þjálfara Hauka og spyr hvort hann geti fengið hann lánaðan í HK. Búi gefur grænt á það og gefur Búa númerið hjá Alexander ," sagði Kristján Óli Sigurðsson í Dr. Football í dag.

„Brynjar fer beint í símann og hringir í kauða. 'Sæll Brynjar Björn, hérna þjálfari HK. Ég er búinn að tala við þjálfarann og við viljum fá þig á láni út tímabilið og ég var að spá hvort ég geti ekki fengið þig á æfingu.' Leikmaðurinn sagðist vera klar í það."

„Leikmaðurinn mætir á æfingu á mánudegi og byrjar að klæða sig. Brynjar Björn var frammi á gangi að fá sér kaffi þegar Leifur (Andri Leifsson) fyrirliði röltir fram og spyr: 'Hvaða gæi er þetta inn í klefa?' 'Þetta er Alexander Sindrason, við erum að fá hann lánaðan frá Haukum."

„Leifur segir: 'Ha?, Þetta er ekki Alexander Sindrason.' Þá hringdi hann víst í vitlausan Alexander og hringdi í Alexander Bjarka Rúnarsson leikmann Vængi Júpíters. Hann er búinn að spila 0 mínútur fyrir Vængina í sumar. Hann var mættur í HK klefann og hélt að hann væri að fá Pepsi Max mínútur."


Alexander Bjarki Rúnarsson æfði með varaliði Hauka, KÁ í vetur en Búi Vilhjálmur þjálfaði KÁ í 4. deildinni áður en hann tók við sem aðalþjálfari Hauka fyrr í sumar.

„Hann fór ekki á æfingu, hann tók saman dótið sitt og fór. Þetta var svona hrottalegur misskilningur. Búi gaf upp rangan Alexander í símaskránni því hann var með tvo. Hinn mætti ekkert á æfingu fyrr en daginn eftir," sagði Kristján Óli Í Dr. Football í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner