Fotbolti.net
19.08.20 - 20:36
Helgi Fannar Sigurðsson

Igor: Hefðum getað lagst niður og vorkennt okkur

Auglýsing
Igor Bjarni Kostic.

Igor Bjarni Kostic.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

„Við náðum að skapa nóg," sagði Igor Bjarni Kostic, þjálfari Hauka eftir 2-1 sigur á Völsungi á heimavelli í kvöld.

Haukar lentu undir snemma í leiknum þegar Birgir Magnús Birgisson setti boltann í eigið net. Eins og oft áður í sumar tókst Hafnfirðingum að snúa blaðinu við í seinni hálfleik og ná í sigur. Kristófer Dan Þórðarson jafnaði leikinn þegar 20 mínútur lifðu leiks. 10 mínútum síðar skoraði Arnór Pálmi Kristjánsson glæsilegt sigurmark og þar við sat.
„Við vorum alls ekki líklegir í fyrri hálfleik þó við höfum verið að spila vel. Í seinni hálfleik erum við öllu skeinuhættari og skorum tvö mjög fín mörk."

Igor hrósaði andstæðingum sínum í dag fyrir góðan leik.

„Við mættum góðu liði Völsungs sem að sárlega vantaði þessi stig. Þeir eru vel skipulagðir. Mér fannst við bara malla þetta áfram og ná í sigurinn. "

Haukar hafa nú náð að snúa öllum þeim leikjum þar sem þeir hafa lent undir á tímabilinu sér í vil. Igor er stoltur af karakternum sem hans menn sína.

„Það (að snúa leikjum við) er ástæðan fyrir því að ég er svona stoltur. Á föstudaginn þá hefðum við getað lagst niður eftir leikinn (tapleikur gegn Njarðvík) og vorkennt okkur. Okkur vantaði Þórð, Sigurjón og Pál Hróar í dag. Hitt og þetta sem er í gangi. Svo lendum við undir í dag en við höldum áfram og við sjáum að leikurinn er 90 mínútur og við gerum okkar."

Fyrri hálfleikur hjá Haukum í dag var ekki mikið fyrir augað. Igor talar um að það hafi vantað upp á spil fram á við.

„Við vorum að taka auka snertingu eða sendingu sem oft skilaði sér í einhverju öruggu vali frekar en að koma boltanum hratt upp á stöður þar sem við gátum farið einn á einn og ógnað á vörnina, fengið fyrirgjafir eða gegnumbrot. Mér fannst ég sjá meira af því í seinni hálfleik."

Að lokum ræddi Igor félagaskiptagluggann. Hann útilokar ekki að fá inn leikmann.

„Við stefnum að því en sjáum bara hvað setur."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.