Fotbolti.net
19.08.21 - 19:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Lengjudeildin: Fyrsti sigur Grindavíkur í tvo mánuði

Sigurður Bjartur gerði tvö mörk.

Sigurður Bjartur gerði tvö mörk.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
<b>Grindavík 2 - 1 Þróttur R.</b>
0-1 Róbert Hauksson ('25 )
1-1 Sigurður Bjartur Hallsson ('58 )
2-1 Sigurður Bjartur Hallsson ('62 )
<u>Rautt spjald:</u> Jósef Kristinn Jósefsson, Grindavík ('63) <a href="https://www.fotbolti.net/game.php?action=view_game&id=4917" target="_blank">Lestu um leikinn</a>
Grindavík vann býsna langþráðan sigur í Lengjudeildinni í kvöld. Grindavík fékk Þróttara í heimsókn.

Gengi Grindvíkinga upp á síðkastið hefur verið vægast sagt slæmt og fyrir þenna leik í kvöld hafði liðið ekki unnið fótboltaleik í tvo mánuði.

Róbert Hauksson, sem hefur vakið athygli fyrir fína frammistöðu í slöku liði Þróttara í sumar, kom gestunum yfir um miðbik fyrri hálfleiks og var staðan 0-1 í hálfleik.

Grindavík mætti aftur á móti vel inn í seinni hálfleikinn. Sigurður Bjartur Hallsson jafnaði metin og stuttu síðar varð staðan 2-1 þegar Sigurður Bjartur skoraði öðru sinni.

„Hvar væri Grindavík ef hans nyti ekki við???? Fær boltann fyrir utan teiginn, Leikur boltanum ögn nær áður en hann lætur vaða á markið fast með jörðinni. Boltinn steinliggur í bláhorninu og Grindavík snúið leiknum sér í vil," skrifaði Sverrir Örn Einarsson í beinni textalýsingu þegar sóknarmaðurinn öflugi skoraði sitt annað mark.

Strax eftir markið missti Grindavík mann af velli; Jósef Kristinn Jósefsson fékk sitt annað gula spjald. Einum færri tókst Grindavík þó að landa sigri og lokatölur suður með sjó, 2-1.

Afar langþráður sigur fyrir þá gulu, en þeir sitja í sjöunda sæti með 23 stig. Þróttur er fimm stigum frá öruggu sæti þegar fimm leikir eru eftir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.