Fotbolti.net
19.09.20 - 18:11
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið Arsenal og West Ham: Ceballos og Saka byrja

Byrjunarlið Arsenal og West Ham: Ceballos og Saka byrja
Canon

Mynd: Getty Images

Bukayo Saka og Dani Ceballos koma inn í byrjunarlið Arsenal sem tekur á móti West Ham United í Lundúnaslag.
Willian, Pierre-Emerick Aubameyang og Alexandre Lacazette leiða sóknarlínuna aftur eftir 0-3 sigur gegn Fulham í fyrstu umferð.

Hamrarnir töpuðu fyrir Newcastle í fyrstu umferð og gerir David Moyes aðeins eina breytingu. Arthur Masuaku kemur inn fyrir fyrirliðann Mark Noble sem er meiddur.

Arsenal hefur unnið fjórar af síðustu fimm innbyrðisviðureignum gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni, með markatöluna 11-4.

Arsenal: Leno, Bellerin, Gabriel, Holding, Tierney, Saka, Xhaka, Ceballos, Willian, Aubameyang, Lacazette
Varamenn: Macey, D. Luiz, Kolasinac, Maitland-Niles, Elneny, Pepe, Nketiah

West Ham: Fabianski, Fredericks, Diop, Ogbonna, Cresswell, Masuaku, Rice, Soucek, Fornals, Bowen, Antonio
Varamenn: Randolph, Balbuena, Johnson, Yarmolenko, Anderson, Lanzini, Haller
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.