Mbappe fær frest frá Real Madrid - Richarlison á óskalista Sádi-Arabíu - Madueke vill yfirgefa Chelsea
   þri 19. september 2023 23:52
Brynjar Ingi Erluson
Besti árangur Feyenoord síðan Pétur spilaði með liðinu
Feyenoord hefur ekki tapað í síðustu fimmtán leikjum sínum í Evrópukeppnum
Feyenoord hefur ekki tapað í síðustu fimmtán leikjum sínum í Evrópukeppnum
Mynd: Getty Images
Hollenska liðið Feyenoord fagnaði 2-0 sigri á Celtic í fyrstu umferð í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld og jafnaði þar með árangur frá 1983.

Calvin Stengs og Alireza Jahanbakhsh skoruðu mörk Feyenoord gegn níu leikmönnum Celtic.

Feyenoord er nú ósigrað á heimavelli í Evrópu í síðustu fimmtán leikjum, en liðið hefur unnið þrettán og gert tvö jafntefli.

Þetta er besti árangur liðsins í 40 ár, en síðast tókst þetta þegar Pétur Pétursson, þjálfari kvennaliðs Vals, var á mála hjá Feyenoord.

Pétur lék með liðinu frá 1978 til 1981 og síðan aftur tímabilið 1984-1985.

Feyenoord tókst að jafna það afrek en það er hins vegar ekki besti árangurinn í sögunni því frá 1962 til 1974 fór liðið í gegnum 25 leiki í Evrópu án þess að tapa.


Athugasemdir
banner