Ari Freyr: Trúi ekki að dómarinn skoði þetta of mikið
Auglýsing

Ari fagnar markinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari fagnar markinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari Freyr Skúlason, sem bar fyrirliðabandið lengi vel í kvöld gegn Katar í vináttulandsleik sem fram fór í Belgíu, segir að það hafi vantað gæðin fyrst til þess að vinna sigur á Katar. Leikurinn endaði með jafntefli.
Þetta er síðasti leikur ársins en íslenska liðið hefur núna farið í gegnum 13 leiki án sigurs.

„Við erum að gefa mikið af feilsendingum og erum að tapa boltanum of auðveldlega. Það vantaði gæðin hjá okkur," sagði Ari Freyr.
Ari Freyr átti aukaspyrnu sem rataði í netið í fyrri hálfleik. Boltinn hafði viðkomu í markverði Katar en ef Ari fær markið skráð á sig, þá er þetta hans fyrsta landsliðsmark.
„Þetta er klárlega mitt mark. Ég vona að ég fái þetta skráð á mig þá er þetta fyrsta markið mitt. Ég trúi ekki að dómarinn fari að skoða þetta of mikið."
„Ég hef fengið fyrirliðabandið áður, maður var einn af þeim helstu á vellinum, en maður er aðallega svekktur að hafa ekki náð að vinna síðasta leikinn á árinu."
Ísland spilaði aftur í kvöld með þriggja manna vörn. Ari segir að það sé upplagt fyrir sig en liðið þurfi í heild að æfa það betur.
Það verður dregið í undankeppni EM í desember. Ari býst við því að fá Króatíu þar. „Ætli við fáum ekki Króatíu, er það ekki hægt?"
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.