Kylian Mbappé skoraði þrennu í 14-0 sigri Frakklands gegn Gíbraltar í undankeppni EM í gær og svaraði spurningum að leikslokum.
Eftir þessa þrennu hefur Mbappe skorað 300 mörk á ferlinum, þrátt fyrir að vera aðeins 24 ára gamall, en hann stefnir ekki á að hægja á sér.
„Þetta er bara partur af því að vera fótboltamaður. Það eru til leikmenn sem skoruðu 800 eða 850 mörk á sínum ferli," sagði Mbappe eftir leikinn.
„300 mörk eru bara brandari! Ég verð að halda áfram að bæta mig, bæði fyrir félagsliðið mitt og landsliðið."
Athugasemdir