Fotbolti.net
19.12.23 - 18:09
Ívan Guðjón Baldursson

Stefán og Dusan aðstoða Ian Jeffs hjá Haukum

Ian Jeffs og félagar eru tilbúnir í undirbúningstímabilið.

Ian Jeffs og félagar eru tilbúnir í undirbúningstímabilið.

Canon

Mynd: Haukar

Haukar eru búnir að staðfesta mikilvægar viðbætur við þjálfarateymi meistaraflokks karla, þar sem Dusan Ivkovic og Stefán Logi Magnússon munu starfa undir leiðsögn Ian Jeffs.
Dusan verður aðstoðarþjálfari og mun Stefán Logi taka að sér markmannsþjálfun.

Þá mun Árni Hjörvar Hilmarsson halda áfram með styrktarþjálfun og verður Ellert Ingi Hafsteinsson áfram sjúkraþjálfari liðsins.

Dusan á farsælan feril að baki í fótboltaheiminum og hefur áður starfað hjá Ægi, Fjölni, HK, Grótti og Þrótti R. hér á landi, auk þess að hafa verið yfirmaður akademíustarfsins hjá Supernova Beijing í Kína.

Stefán Logi er fenginn úr röðum Selfyssinga og átti hann flottan feril sem leikmaður í íslenska boltanum, þar sem hann varð tvívegis deildar- og bikarmeistari á tíu ára dvöl hjá KR. Hann er fæddur 1980 og spilaði 10 A-landsleiki fyrir Ísland.

„Sú mikla reynsla og þekking sem Dusan, Stefán, Árni og Ellert koma með til liðsins á eftir að hjálpa okkar unga liði að taka framförum og styðja þá á leið okkar upp í Lengjudeildina," sagði Ian um starfsteymið sitt.

Ian Jeffs tekinn við Haukum (Staðfest)
TENGT EFNI

Ian Jeffs tekinn við Haukum (Staðfest)

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.