Fotbolti.net
20.01.23 - 00:42
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Ítalski bikarinn: Lookman í banastuði - Juventus áfram

Ademola Lookman skoraði tvö fyrir Atalanta

Ademola Lookman skoraði tvö fyrir Atalanta

Canon

Mynd: EPA

Atalanta, Juventus og Lazio eru öll komin í 8-liða úrslit ítalska bikarsins.
Atalanta vann Spezia 5-2. Enski vængmaðurinn Ademola Lookman heldur áfram að tæta ítalska boltann í sig en hann skoraði tvö mörk fyrir Bergamó-liðið. Hann er nú með ellefu mörk og þrjár stoðsendingar í átján leikjum.

Mikael Egill Ellertsson var ekki í leikmannahópnum hjá Spezia en hann er á förum frá félaginu.

Lazio lagði Bologna að velli, 1-0. Felipe Anderson gerði sigurmarkið á 33. mínútu.

Juventus vann þá nýliða Monza, 2-1. Moise Kean kom Juventus yfir áður en Mattia Valoti jafnaði rúmum fimmtán mínútum síðar. Það var svo Federico Chiesa sem skoraði sigurmarkið þegar tólf mínútur voru eftir af leiknum.

Úrslit og markaskorarar:

Atalanta 5 - 2 Spezia
1-0 Ademola Lookman ('10 )
2-0 Ademola Lookman ('12 )
2-1 Albin Ekdal ('14 )
3-1 Hans Hateboer ('26 )
3-2 Daniele Verde ('38 )
4-2 Rasmus Hojlund ('72 )
5-2 Ethan Ampadu ('90, sjálfsmark )

Lazio 1 - 0 Bologna
1-0 Felipe Anderson ('33 )

Juventus 2 - 1 Monza
1-0 Moise Kean ('8 )
1-1 Mattia Valoti ('24 )
2-1 Federico Chiesa ('78 )
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.