Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 20. janúar 2023 22:58
Brynjar Ingi Erluson
Reykjavíkurmót kvenna: Naumur sigur Vals
Bryndís Arna skoraði sigurmark Vals
Bryndís Arna skoraði sigurmark Vals
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 2 - 1 Víkingur R.
0-1 Nadía Atladóttir ('14 )
1-1 Sigríður Theód. Guðmundsdóttir ('16 )
2-1 Bryndís Arna Níelsdóttir ('46 )

Íslands- og bikarmeistaralið Vals lagði Víking, 2-1, í A-riðli Reykjavíkurmótsins á Origo-vellinum.

Nadía Atladóttir kom gestunum yfir á 14. mínútu en sú forysta varði þó ekki lengi því Sigríður Theód. Guðmundsdótti, sem er fædd árið 2005, jafnaði tveimur mínútum síðar.

Bryndís Arna Níelsdóttir gerði sigurmark Vals strax í upphafi síðari hálfleiks lokatölur því 2-1 Val í vil.

Valur er með 6 stig, jafnmörg og Fylkir. Liðin mætast eftir viku á Würth-vellinum og kemur þá í ljós hvaða lið leikur til úrslita í mótinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner