Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
   lau 20. janúar 2024 14:00
Aksentije Milisic
Simen Kjellevold í norsku B-deildina (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Simen Kjellevold er genginn til liðs við Åsane í norsku B-deildinni en hann kemur til liðsins frá KR. Åsane endaði í tólfta sæti B-deildarinnar á síðustu leiktíð.


Hinn 29 ára gamli Kjellevold spilaði 20 leiki í deild og bikar með KR á síðustu leiktíð en hann hafði skrifað undir tveggja ára samning. Hann átti því enn ár eftir af samningi sínum við KR.

Gregg Ryder, þjálfari KR, hafði tilkynnt að KR yrði með nýjan markvörð á næstu leiktíð.

Olav Öby, norski miðjumaðurinn sem lék með KR, yfirgaf einnig félagið á dögunum en hann átti eitt ár eftir af samningi eins og Kjellevold. Öby lék 28 leiki í deild og bikar og skoraði eitt mark.

Mikla breytingar í gangi hjá KR en liðið fékk Alex Þór Hauksson og Aron Sigurðarson til liðsins á dögunum úr atvinnumennskunni.


Athugasemdir
banner
banner
banner