Ryan Babel var i liði Ajax sem tapaði 2-0 gegn Getafe í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.
Í síðari hálfleik var aukaspyrna var dæmd á Babel fyrir brot á Allan Nyom, fyrrum leikmanni Watford og West Brom.
Nyom brá sér í hlutverk skotins hermanns og byrjaði að velta sér um völlinn. Dómarinn var búinn að stöðva leikinn og dró hann fram gula spjaldið til að sýna Babel, sem var ekki sáttur með ákvörðunina.
Í stað þess að mótmæla ákvað hann að herma eftir Nyom og var útkoman kostuleg, eins og er hægt að sjá hér að neðan.
Ryan Babel rolls around on the floor and pretends to limp to mock Allon Nyom's reaction after Babel gets booked for a foul on Nyom from r/soccer
Athugasemdir