„Ég tjái mig vanalega ekki um aðra leikmenn en fyrst ég þjálfaði Erling þá er ég ánægður fyrir hans hönd," sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, á fréttamannafundi í gær aðspurður út í Erling Braut Haaland.
Hinn 19 ára gamli Haaland skoraði tvö mörk fyrir Dortmund gegn PSG í vikunni en hann er markahæstur í Meistaradeildinni.
Solskjær þjálfaði Haaland hjá Molde í Noregi en leikmaðurinn var orðaður við Manchester United áður en hann gekk í raðir Dortmund.

„Hann er topp strákur, algjörlega frábær, og ég vil að honum vegni sem best," sagði Solskjær.
„Það er frábært fyrir Noreg að fá aftur framherja sem getur skorað mörk."
Athugasemdir