Fotbolti.net
20.03.23 - 15:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Rashford og Mount draga sig úr enska hópnum

Marcus Rashford.

Marcus Rashford.

Canon

Mynd: EPA

Þrír leikmenn hafa dregið sig úr enska landsliðshópnum frá því hann var opinrberaður. Um helgina varð ljóst að Nick Pope, markvörður Newcastle, gæti ekki verið með vegna meiðsla og var Fraser Forster, markvörður Tottenham, tekinn inn í hópinn.

Graham Potter, stjóri Chelsea, sagði þá á fréttamannafundi fyrir leikinn gegn Everton að Mason Mount gæti ekki spilað í komandi landsleikjum. Þetta staðfesti sambandið í dag.
Á sama tíma var tilkynnt að Marcus Rashford yrði heldur ekki með þar sem hann fékk högg á sig gegn Fulham í sigri Manchester United í gær.

Enginn verður kallaður inn í stað þeirra Mount og Rashford. Eftir þeirra meiðsli eru 23 leikmenn í hópnum sem mætir Ítalíu í Napoli á fimmtudag og Úkraínu á Wembley næsta sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.