ÍBV fær markvörð úr háskólaboltanum (Staðfest)


Mynd: ÍBV


Mynd: ÍBV

ÍBV er búið að krækja sér í markvörð úr bandaríska háskólaboltanum. Sú heitir Valentina Bonaiuto og er 24 ára gömul.
Valentina mun veita Guðnýju Geirdóttur samkeppni um byrjunarliðssæti Eyjakvenna. Hún kemur frá Venesúela og er með mikinn metnað þar sem hún vill vinna sér inn byrjunarliðssæti hjá landsliðinu.
Valentina, sem hefur leikið með Clayton State í bandaríska háskólaboltanum undanfarin ár við góðan orðstír, hefur þegar hafið æfingar og kann vel við sig í Vestmannaeyjum.
Fyrsti leikur Eyjakvenna á nýju tímabili í Bestu deildinni er næsta þriðjudagskvöld. Þar tekur ÍBV á móti Selfossi í Suðurlandsslag.



